Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Hellirinn

Samfésballiđ á morgun 5. mars;)

04. mars 2010 klukkan 19:34

Kl. 17:00 ALLIR mættir í Féló
Kl. 17:15 Rútan leggur af stað til Reykjavíkur
Kl. 17:25 Stoppað við Landvegamót í max 5 mínútur
Kl. 17:40 Stoppað við Skeiðarafleggjara
Kl. 18:45 Áætlaður komutími í Reykjavík
Kl. 23:00 Allir safnast saman fyrir utan andyri Laugardalshallarinnar
Kl. 23:15 Lagt af stað heim

Svona lítur ferðalagið okkar út;)

Féló er opnađ...

12. janúar 2010 klukkan 17:17

Féló er opnað aftur og mun vera opið á þriðjudögum kl. 4-6 fyrir 4,5,6 og 7...Það er svo opið frá klukkan hálf 8-10 fyrir 7,8,9 og 10 bæði á þriðjudögum og fimmtudögum...:) Sjáumst!
Kveðja Árni og Ína...:)

Jólaféló í nćstu viku !

03. desember 2009 klukkan 19:33

Jólaféló 

 
  

Þriðjudaginn 8.desember verður jólaféló hjá 4.-7.bekk og fimmtudaginn 10.desember hjá 8.-10.bekk. Smákökur og kakó verða á boðstólnum, Ingi verður í jólasveinabúning og til að kóróna jólastemninguna verður jólamynd á skjánum. Eva stjórnar jólasamsöng :)
SJÁUMST HRESS OG HVETJUM ALLA TIL AÐ MÆTA !

Kveðja, starfsfólk Hellisins


Kynning frá Flubbó á fimmtudaginn.

24. nóvember 2009 klukkan 16:05
Næstkomandi fimmtudag ætlar Flugbjörgunarsveitin á Hellu að koma í heimsókn til okkar og vera með stutta kynningu á starfi sínu fyrir 8.-10.bekk. Við hvetjum sem flesta til að koma og taka vel á móti þeim.

Einnig viljum við minna á Poolmót fyrir eldri sem er í fullum gangi og höldum við áfram með það í kvöld og á fimmtudaginn.

Kveðja,
Erla, Ingi og Eva

Undankeppni Samfés..

17. nóvember 2009 klukkan 19:53

KOMIN ÁFRAM Í SAMFÉS SÖNGKEPPNINA 2010

Þær Fríða Hansen og Ragnheiður Ósk stóðu sig eins og hetjur í undankeppni Samfés sem haldin var á laugardaginn 14.nóvember sem haldin var í íþrótthúsinu í Ásgarði í Garðabæ. Hægt er að sjá myndband af frammistöðu þeirra inná Facebook síðunni okkar
www.facebook.com/hellirinn .
34 krakkar komu með okkur á keppnina og studdu við bakið á stelpunum og brutust út mikil fagnaðarlæti þegar ljóst var að þær komust áfram. Dansleikur var haldin eftir keppnina og skemmtu krakkarnir sér bara mjög vel þar.

MYNDIR AF TVENNUNNI KOMNAR INN :)


Starfsmenn Hellisins.

Tvennan afstađin og ţá er undankeppni Samfés nćst á dagskrá!

05. nóvember 2009 klukkan 20:13

Seinni hluti Tvennunnar fór fram síðastliðinn þriðjudag í íþróttahúsinu í Þykkvabæ. Félagsmiðstöðvar allsstaðar að á suðurlandi komu til okkar og úr varð eitt heljarinnar partý. Ingó og Veðurguðirnir trylltu lýðinn og skemmtu allir sér vel :) Flugbjörgunarsveitin á Hellu aðstoðaði okkur við gæsluna og viljum við þakka þeim kærlega fyrir.

Laugardaginn 14.nóvember verður undankeppni Samfés söngvakeppninnar haldin í Garðabæ. Síðasti séns á að skrá sig er á þriðjudaginn 10.nóvember.
Ef einhver er ekki búinn að skrá sig þá kemst hann ekki með, engar undantekningar!
Áætlaður kostnaður við ferðina er 3000 krónur fyrir miða á keppnina og ballið og rútuferð fram og til baka. Keppnin byrjar klukkan 19.00 og stefnum við því á brottför frá Féló um kl. 17.00. Eftir keppnina hitar dj upp fyrir ballið sem byrjar 22.00. Veitingar eru seldar á staðnum s.s. pizzur og fleira í þeim dúr.
Engum verður hleypt inn í rútuna nema að hann sé vel til hafður og er því engin þörf á að taka með auka föt því búist er við snyrtilegum klæðnaði á keppnina líka.

Við minnum á að öll starfsemi félagsmiðstöðvarinnar er áfengis- og vímuefnalaus. Brot á þessari reglu = heimsending á eigin kostnað (foreldrar).

Söngkeppni Hellirsins 2009

29. október 2009 klukkan 21:06

Þar sem undankeppni Samfés á suðurlandi nálgast óðum hélt Félagsmiðstöðin Hellirinn á Hellu undankeppni sína þann 29.október. Keppnin var gríðarlega jöfn og spennandi en að lokum var það Fríða Hansen sem bar sigur úr bítum. Hún söng lagið Don't Want to Miss a Thing með Aerosmith.


Fríða Hansen 

Fríða sátt með flotta verðlaunapeninginn sinn :D

Myndir, bíóferđin og fl.

20. október 2009 klukkan 16:54
Bíóferðin sl. fimmtudaginn var vel heppnuð og við þökkum öllum sem komu fyrir góða ferð :) Þó þurfa alltaf að vera einhverjir svartir sauðir í hópnum og þeir taka út refsingu í næstu ferð. En við fórum á stórmyndina Fame og var almenn ánægja í hópnum með valið.

Einnig erum við byrjuð að setja inn myndir á Facebook sem voru teknar í september og október. Endilega kíkið á það :)
http://www.facebook.com/hellirinn

Nú fer að líða að því að skráningu í undankeppnina vegna söngkeppni Samfés ljúki svo það fer hver að verða síðastur að skrá sig!! Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 22.október !!

Adios, starfsmenn!

Bíóferđ & breyttur opnunartími

08. október 2009 klukkan 19:40

BÍÓFERÐ Á SELFOSS

Núna erum við búin að plana það að skella okkur í bíó á Selfossi þann 15.október ef næg þátttaka næst. Áætlað er að fara með eldri hópinn semsagt 19:30 til 22:00 hópinn. Við reiknum með þetta muni kosta svona sirka 2000 kr. Rúta verður fram og til baka. Endilega komið og látið okkur vita hvort þið ætlið að koma með , síðasti dagur til þess að láta okkur vita er þriðjudaginn 13.október.


BREYTTUR OPNUNARTÍMI

Opnunartíma hefur verið breytt hjá eldri hóps frá föstudögum yfir á fimmtudaga en á sama tíma 19:30 - 22:00.


kærar kveðjur
Eva , Erla & Ingi

Viđburđa dagatal

22. september 2009 klukkan 20:22

Núna erum við búin að setja inn hérna í aðalvalmyndina Viðburða dagatal fyrir haustið 2009 :)
Þar koma inn allir viðburðir sem eru á döfinni.
Breytingar verða líka auglýstar með fyrirvara.


Takk fyrir..
Starfsmenn Hellisins

Eva Ýr ,Erla Sóldís & Ingi Hlynur.

Breyttir opnunartímar fyrir yngri hóp.

15. september 2009 klukkan 19:33
Frá og með 15.september verður opnunartíminn fyrir 4.-7.bekk á þriðjudögum frá 16:00-18:00. Vonum að þessir tímar henti betur og við förum að sjá betri mætingu hjá þessum aldurshópi í kjölfarið :)

Kveðja Erla, Ingi og Eva.

Opnum aftur eftir sumarfrí.

08. september 2009 klukkan 19:48
Hellirinn opnaði aftur síðastliðinn föstudag, 4.september.

Nýir opnunartímar fyrir yngri hópinn eru á föstudögum frá 4-5 og fyrir eldri hópinn á þriðjudögum og föstudögum frá 19.30 - 22.00.

Plássið hefur aðeins minnkað vegna framkvæmdanna í tengibyggingunni en við látum það ekki trufla okkur mikið, þröngt mega sáttir sitja ;)

Einnig er kominn nýr starfsmaður í hópinn í stað Kristins Inga sem er fluttur í bæinn vegna náms síns við Háskóla Íslands. Sá heitir Ingi Hlynur og kannist þið eflaust mörg við hann úr Vinnuskólanum í sumar. Við tökum að sjálfsögðu vel á móti honum :D

Framundan er viðburðaríkur og skemmtilegur vetur og vonumst við til að sem flestir láti sjá sig svo að við getum gert sem mest saman.





Kv. Erla Sóldís, Eva Ýr og Ingi Hlynur!

Síđasta opnunin ţangađ til í haust ;p

03. júní 2009 klukkan 13:31
 

Félagsmiðstöðin Hellirinn
4.júní 2009

Núna er komið að síðasta opnunnar degi félagsmiðstöðvarinnar í sumar sem verður fimmtudagurinn 4.júní. Við ætlum að enda þetta með smá örðuvísi feló tíma. 

 Við ætlum að bjóða 4.-6. að koma með okkur í sund og grilla svo eftir sundið. Þetta mun vera á Hellis-tímanum frá 16:00 - 18:00 , áætlað er að vera í sundi í rúman klukkutíma og fara svo niður í Hellirinn og grilla saman hamborgara.

ATH.Krakkarnir verða að koma með drykki sjálf.

 Einnig ætlum við að bjóða krökkunum í 7.-10. bekk að koma í sund á Hellis-tímanum frá klukkan 19:30 - 22:00Ekki er alveg komið í ljós hvort við verðum í sundi lengur en til 21:00 en það kemur í ljós á morgun bara ;)

 Hlökkum til að sjá ykkur :)

Ath. munum auglýsa opnun í haust síðar ;)

 

Starfsmenn Hellisins
Kristinn Ingi , Eva Ýr & Erla Sóldís

Tvennan o.fl.!

25. maí 2009 klukkan 20:56

Tvennunni hefur verið frestað fram á haustið og verður í byrjun næsta skólaárs. Látið endilega berast.

Myndirnar frá ferðinni upp á Laugaland eru komnar inn og erum við mjög ánægð með hana og vonum að allir hafi skemmt sér vel. Einnig var okkur hrósað fyrir góða umgengni sem er ekkert nema jákvætt :) Takk fyrir okkur!

Starfsfólk Hellisins..

Tvennan tvennan tvennan

11. maí 2009 klukkan 16:02

Vegna þess hve margir eru í prófum á þeim tíma sem við ætluðum að hafa Tvennuna höfum við ákveðið að fresta henni. Endanleg dagsetning verður gefin út síðar :)

Starfsmenn Hellisins..

Ferđ á Laugarland 9.-10.maí 2009

27. apríl 2009 klukkan 17:23
 

8.-10.bekkur

 Ferð á Laugarland 9.-10.maí 2009

Laugardaginn 9.maí ætlum við að fara upp á Laugaland og gista eina nótt. Planið er að mæta upp á Laugaland klukkan 12:00 að hádegi og fara svo heim klukkan 12:00 á sunnudeginum.
Við ætlum að fara og hafa það gaman saman. Gera eitthvað úti , fara í sund & svo hafa svona bíó kvöld.
Við ætlum að vera með sameiginlegan kvöldmat.

Ath. Þið verðið að koma með eitthvað að drekka sjálf , annars er bara vatn.

Þið verðið að láta okkur vita ef þið ætlið að koma með.

 Það sem þið þurfið að hafa með ykkur er:

 Næsti fyrir kaffitíman
Morgunmat
Drykki
Dýnu
Sæng & kodda
Handklæði
Sundföt
Tannbursta & tannkrem
Náttföt
Eitthvað gotterí fyrir bíókvöldið!!

 

 Endilega komiðið með óska mynd til þess að vera með á bíókvöldinu !:)

 Munið að koma og skrá ykkur hjá okkur.!

  Stafsmenn Hellisins

Kristinn Ingi , Erla Sóldís & Eva Ýr

Jćjaa núna er sko komiđ sumar ;)

27. apríl 2009 klukkan 16:07

Hæhæ :)

Núna er formlega komið sumar krakkar ;) í seinustu viku var einmitt Sumardagurinn fyrsti og vorum við þá með Hip hop ball sem gekk ákætlega bara. Krakkarnir mættu ágætlega og í hip hop fötunum. Dj.Stinni var hérna að dj-ast e-h ROSA gaman Laughing eða réttu nafni Kristinn Ingi :)
En þetta gekk ágætlega bara. Horfðum á hip hop dans mynd með yngri hópnum þar sem mætingin var svoldið slappari þar en það slapp , skemmtum okkur vel yfir þessari mynd bara ;p

En núna í dag er sko blíðan úti. Spurning hvort að við skellum okkur út að gera eitthvað , sjaum til hvað börnin segja. En annars er komandi plön rosa spennandi.
Við förum næst á Laugarland með eldri hópinn og svo verðum við með sundlaugarpartý fyrir bæði 4.-6.bekk og svo 7.-10.bekk á Hellu.
Oooog allir verða að koma og skemmta sér með okkur þar :D

Látum þetta gott heita í þetta skiptið :D

Starfsfólk Hellisins
Eva Ýr , Erla Sóldís & Kristinn Ingi

Hiphop ball ;)

16. apríl 2009 klukkan 16:55

  HIP HOP - BALL - HIP HOP - BALL

Fimmtudaginn 23.apríl eða Sumardaginn fyrsta veður hip hop ball hérna í félagsmiðstöðinni. Ballið verður á venjulegum opnunar tímum 4.-6.bekkur 16:00 - 18:00 & 7.-10.bekkur 19:30 - 22:00.

 Þetta köllum við HIP HOP ball því það verður HIP HOP þema :)
& við viljum sjá alla í
HIP HOP fötum , ALLA !!

þið vitið :

                 Stórar íþróttabuxur / jogging
                 Hettupeysur
                 Stórir bolir
                 Tópaks / kúrekaklútar um hausinn
                 BlingBling !!!
                 Stór hálsmen og svona ;)

                      Þið reddið þessu og mætið (:

 DJ. Stinni heldur uppi fjörinu!

 Sjáumst hress og kát í sumarstuðiiiii :c)


                                                                            Starfsfólk Hellisins
                                                                  Eva Ýr , Kristinn Ingi & Erla Sóldís

Seinni hluti af " Tvennan" ... breeyttur tími !!!! :)

16. apríl 2009 klukkan 16:38

Seinni Tvennan verður 21.maí ekki 20.maí vegna tvíbókunnar hjá hljómsveitinni :)

Lögreglan kíkti í heimsókn ;)

02. apríl 2009 klukkan 16:38

Jæja , síðasta fimmtudag vorum við svo heppinn að fá lögregluna í heimsókn hérna til okkar. Hann Ellert kom og kíkti á okkur , spilaði Billijard með strákunum og voru krakkarnir ánægðir með heimsóknina ;)
Endilega að fá þá oftar í heimsókn.
En já núna á þriðjudaginn þá fórum við starfsmennirnir á fund hjá Blátt Áfram sem haldin var í skólanum. Þetta var mjög svo fræðandi fundur, og fengum við að vita margt sem maður var bara heinlega hissa á.
Blátt áfram stendur semsagt fyrir fræðslu og allt í kringum kynferðislega misnotkun á allan hátt.
þessi fundur stóð í sirka 1 og hálfan klukkutíma.
Við keyptum okkur einmitt bók til styktar þeirra sem heitir ,, Þetta eru MÍNIR einkastaðir" sem er skemmtileg ljóðabók um okkar einkastaði.
Mælum með að þessi bók sé til á öllum heimilum ;)




En burt séð frá því , næsta mánudag er BINGÓIÐ!!Laughing 
ALLIR AÐ MÆTA !!
ath. spjaldið kostar 200 kr & hámark 2 spjöld á mann.

En i kvöld er lokað vegna Árshátiðar 7.-10.bekkjar ! :/ þannig við sjáumst á Bingóinu KRAKKAR LaughingTongue out

Starfsmenn Hellisins
Eva Ýr , Kristinn Ingi & Erla Sóldís

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

hvađ vantar í Hellinn