Laugardagsopnun 7.mars
09. mars 2009 klukkan 21:30
Laugardaginn 7.mars var opið hús fyrir nemendur í 1.-3. bekk og foreldra þeirra. Ýmis afþreying var í boði t.d. billiard, playstation, litablöð, píla, perlur, fótboltaspil og svo var tónlistarherbergið opið fyrir þá sem vildu sýna snilli sína, sem var mjög vinsælt :) Einnig voru kaffi og kökur á boðstólnum sem runnu ljúflega niður í mannskapinn.
Dagurinn heppnaðist mjög vel í alla staði og var frábært að fá krakkana í heimsókn til að gefa þeim og foreldrunum smá sýnishorn af því sem er í boði hér í hellinum. Vonumst við til að fá enn fleiri gesti þegar við opnum næst, sem verður vonandi í maí en það verður nánar auglýst síðar.
Hér eru nokkrar myndir af krökkunum en fleiri má sjá á myndasíðunni hér til hliðar.

Starfsfólk Hellisins :)