Lögreglan kíkti í heimsókn ;)
Jæja , síðasta fimmtudag vorum við svo heppinn að fá lögregluna í heimsókn hérna til okkar. Hann Ellert kom og kíkti á okkur , spilaði Billijard með strákunum og voru krakkarnir ánægðir með heimsóknina ;)
Endilega að fá þá oftar í heimsókn.
En já núna á þriðjudaginn þá fórum við starfsmennirnir á fund hjá Blátt Áfram sem haldin var í skólanum. Þetta var mjög svo fræðandi fundur, og fengum við að vita margt sem maður var bara heinlega hissa á.
Blátt áfram stendur semsagt fyrir fræðslu og allt í kringum kynferðislega misnotkun á allan hátt.
þessi fundur stóð í sirka 1 og hálfan klukkutíma.
Við keyptum okkur einmitt bók til styktar þeirra sem heitir ,, Þetta eru MÍNIR einkastaðir" sem er skemmtileg ljóðabók um okkar einkastaði.
Mælum með að þessi bók sé til á öllum heimilum ;)
En burt séð frá því , næsta mánudag er BINGÓIÐ!!
ALLIR AÐ MÆTA !!
ath. spjaldið kostar 200 kr & hámark 2 spjöld á mann.
En i kvöld er lokað vegna Árshátiðar 7.-10.bekkjar ! :/ þannig við sjáumst á Bingóinu KRAKKAR 

Starfsmenn Hellisins
Eva Ýr , Kristinn Ingi & Erla Sóldís