Jæjaa núna er sko komið sumar ;)
Hæhæ :)
Núna er formlega komið sumar krakkar ;) í seinustu viku var einmitt Sumardagurinn fyrsti og vorum við þá með Hip hop ball sem gekk ákætlega bara. Krakkarnir mættu ágætlega og í hip hop fötunum. Dj.Stinni var hérna að dj-ast e-h ROSA gaman
eða réttu nafni Kristinn Ingi :)
En þetta gekk ágætlega bara. Horfðum á hip hop dans mynd með yngri hópnum þar sem mætingin var svoldið slappari þar en það slapp , skemmtum okkur vel yfir þessari mynd bara ;p
En núna í dag er sko blíðan úti. Spurning hvort að við skellum okkur út að gera eitthvað , sjaum til hvað börnin segja. En annars er komandi plön rosa spennandi.
Við förum næst á Laugarland með eldri hópinn og svo verðum við með sundlaugarpartý fyrir bæði 4.-6.bekk og svo 7.-10.bekk á Hellu.
Oooog allir verða að koma og skemmta sér með okkur þar :D
Látum þetta gott heita í þetta skiptið :D
Starfsfólk Hellisins
Eva Ýr , Erla Sóldís & Kristinn Ingi