Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Hellirinn

Tvennan afstaðin og þá er undankeppni Samfés næst á dagskrá!

05. nóvember 2009 klukkan 20:13

Seinni hluti Tvennunnar fór fram síðastliðinn þriðjudag í íþróttahúsinu í Þykkvabæ. Félagsmiðstöðvar allsstaðar að á suðurlandi komu til okkar og úr varð eitt heljarinnar partý. Ingó og Veðurguðirnir trylltu lýðinn og skemmtu allir sér vel :) Flugbjörgunarsveitin á Hellu aðstoðaði okkur við gæsluna og viljum við þakka þeim kærlega fyrir.

Laugardaginn 14.nóvember verður undankeppni Samfés söngvakeppninnar haldin í Garðabæ. Síðasti séns á að skrá sig er á þriðjudaginn 10.nóvember.
Ef einhver er ekki búinn að skrá sig þá kemst hann ekki með, engar undantekningar!
Áætlaður kostnaður við ferðina er 3000 krónur fyrir miða á keppnina og ballið og rútuferð fram og til baka. Keppnin byrjar klukkan 19.00 og stefnum við því á brottför frá Féló um kl. 17.00. Eftir keppnina hitar dj upp fyrir ballið sem byrjar 22.00. Veitingar eru seldar á staðnum s.s. pizzur og fleira í þeim dúr.
Engum verður hleypt inn í rútuna nema að hann sé vel til hafður og er því engin þörf á að taka með auka föt því búist er við snyrtilegum klæðnaði á keppnina líka.

Við minnum á að öll starfsemi félagsmiðstöðvarinnar er áfengis- og vímuefnalaus. Brot á þessari reglu = heimsending á eigin kostnað (foreldrar).

 
Sóley Sævarsdóttir Meyer !
en klukkan hvað er ballið búið ? :Þ og má vera eftir í bænum ?
#1
08. nóvember 2009 klukkan 22:37
Ballið er búið kl. hálf 12 og ef þú ætlar að vera eftir verða foreldrar að hringja í okkur.
S: 864-5950 (Ingi)
#2
10. nóvember 2009 klukkan 15:54

Skrifa athugasemd

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

hvað vantar í Hellinn