Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Hellirinn

Góu Páskabingó :)

30. mars 2009 klukkan 15:31
 

Góu Páskabingó Tongue out



Jæja nú er alveg að koma að því , þann 6.apríl næstkomandi verður Góu Páskabingó hérna í Félagsmiðstöðinni Hellirnum. Þetta verður bara á venjulegum opnunnar tíma semsagt klukkan 16:00 - 18:00 fyrir 4.-6.bekk og frá 19:30 fyrir 7.- 10.bekk. Ath. 7.bekkur má ekki koma á bæði , hann mætir um kvöldið með 8. , 9. og 10.bekk.
Spjaldið mun kosta 200 kr og eru HÁMARK 2 spjöld á mann. Við verðum öll saman hérna , Eva , Erla & Kristinn Ingi.

Alveg glæsilegir vinningar í boði.Laughing

 

 Styrktaraðilar eru:

                               GÓA.

                               Samverk Hellu.

                               Þykkvabæjar.

                               Árhús Hellu.

                               Klippistofan Hellu.

 

Þið megið koma með drykki og svona á bingóið , en munið! 

RUSL Í RUSL Wink

 

Byrjum ekki seinna en 16:15 (yngri) & 19:45 (eldri)

 

Hlökkum til að sjá ykkur Laughing

 

Starfsmenn Hellisins

Kristinn Ingi , Eva Ýr & Erla Sóldís.

Seinni hluti af "TVENNAN" verđur 20.maí :)

25. mars 2009 klukkan 16:17

                                                               "Tvennan"
    Laughing 20.maí 2009 kl. 20:00 - 00:00 í Hellubíó
Laughing


Sæl verið þið öll :)

Núna er komið að því!! Seinni hluti af "Tvennan" verður haldinn þann 20.maí næst komandi. Ákveðið hefur verið að hafa þessa tónleika í Hellubíó , loksins fer maður að fara þangað aftur :)
Þetta eru semsagt seinni tónleikarnir af styrknum okkar og ætlum við að hafa þetta flott og mjög gaman.
Þetta eru tónleikar sem haldnir eru fyrir 8.-10.bekk. Við erum búin að óska eftir að hver félagsmiðstöð komi með eitt söngatriði svona til þess að skapa stemmninguna ;p
Aðal hljómsveitin hefur ekki ennþá verið ákveðin en kemur það allt í ljós hver það verður.

Þannig krakkar frá Hellirnum bjóðið ykkur fram og verið í sambandi við okkur með söngatriði á tónleikunum !!

Eins og síðast verðum við svo heppin að hafa flugbjörgunarsveitina Flubbó í gæslu hjá okkur , það er svo gaman :) allir svo hressir þaðan!
Við erum semsagt búin að bjóða félagsmiðstöðum frá Árborg , Ölfusi , Hveragerði , Þorlákshöfn , Kirkjubæjarklaustri , Vík í Mýrdal og Hvolsvelli. Við erum sko handviss um að það verði gott veður og vonumst því til að sjá alla.!
Lítil sjoppa verður hugsanlega á staðnum. 

                Okkur hlakkar til að sjá alla og hafa gaman saman Wink

           



           

          

                                                                                                                          


                                                             Starfsmenn HellirsinsTongue out
                                                    Eva Ýr, Erla Sóldís & Kristinn Ingi

Andlitsförđun

23. mars 2009 klukkan 21:04
 

Andlitsförðun !!

 Núna erum við að spá í að fara að leika okkur aðeins. Þetta er fyrir ykkur krakkana í 4.-6.bekk. Við ætlum að sjá hversu mikinn áhuga þið hafið á því. Þetta má vera allskonar.

 

Stríðsmáling

Prinsessumáling

Fiðrildamáling

Förðun

& eins og þið viljið bara.

 

 

Okkur langar að taka myndir og svona af ykkur , gera þær kanski svoldið flottar.
Talið við okkur endilega ef þið hafið áhuga á þessu krakkar :)

 

 

Starfsmenn Hellisins.

Eva Ýr, Erla Sóldís & Kristinn Ingi

Laugardagsopnun 7.mars

09. mars 2009 klukkan 21:30
Laugardaginn 7.mars var opið hús fyrir nemendur í 1.-3. bekk og foreldra þeirra. Ýmis afþreying var í boði t.d. billiard, playstation, litablöð, píla, perlur, fótboltaspil og svo var tónlistarherbergið opið fyrir þá sem vildu sýna snilli sína, sem var mjög vinsælt :) Einnig voru kaffi og kökur á boðstólnum sem runnu ljúflega niður í mannskapinn.

Dagurinn heppnaðist mjög vel í alla staði og var frábært að fá krakkana í heimsókn til að gefa þeim og foreldrunum smá sýnishorn af því sem er í boði hér í hellinum. Vonumst við til að fá enn fleiri gesti þegar við opnum næst, sem verður vonandi í maí en það verður nánar auglýst síðar.

Hér eru nokkrar myndir af krökkunum en fleiri má sjá á myndasíðunni hér til hliðar.















Starfsfólk Hellisins :)

Pool-mótiđ heppnađist vel ;)

19. febrúar 2009 klukkan 16:31

Jæja á fimmtudaginn var vorum við með Billjard mót hérna í Hellinum fyrir 5.-7.bekk og heppnaðist það mjög vel , því miður komust ekki allir skráðir keppendur vegna veikinda en náðum við samt að halda keppnina.
Það var spenningur og mikið keppnisskap í krökkunum ;)
Sætaröðin var þessi:


                                         1.Sæti - Jakob Þór Jónsson.
                                       2.Sæti - Unnsteinn Óskarsson.
                                       3.Sæti - Hafrún Hlín Sigfúsdóttir.




                             



Þetta var rosalega skemmtileg keppni ;)  
11 keppendur tóku þátt og hér er mynd af hinum hópnum.


  
                        
             

Myndarlegur hópur sem við eigum hérna ;) 

 Krakkar það eru komnar myndir inn af þessu móti endilega skoðið það ;P

- starfsmenn Hellisins.
Eva Ýr , Erla Sóldís & Kristinn Ingi.



                                                        

Samfés 20. - 21. febrúar 2009

05. febrúar 2009 klukkan 16:38

 

Samféshátíð 2009




 Samfés


Laugardalshöll 20 og 21.febrúar

 

Særsti viðburður félagsmiðstöðva á Íslandi er hin svokallaða Samféshátíð, sem samanstendur af dansleik og söngkeppni. Félagsmiðstöðin okkar Hellirinn, er náttúrulega þátttakandi á þesssari hátíð.  Einnig eigum við keppandur í söngkeppninni sem fram fer á laugardeginum 21.febrúar, en það eru þau Kristrún Steingrímsdóttir sem syngur og Júlíus Margrétarson sem spilar undir á gítar.


 


Hátt í 70 unglingar á aldrinum 14 - 16 ára munu fara á hátíðina frá félagsmiðstöðinni Hellirnum. Á föstudagskvöldið er Samfésdansleikur í Laugardalshöll þar sem m.a. Páll Óskar og Ingó og Veðurguðirnir munu spila. Ballið er frá kl.19:00 - 23:00. Félagsmiðstöðin mun bjóða upp á rútuferð gegn mjög vægu gjaldi á dansleikinn. Allir sem ætla á dansleikinn verða að fara með rútunni. Samfés setur það sem skilyrði að einn starfsmaður sé með á hverja 15 unglinga sem mæta á dansleikinn.

 

Rútan mun fara frá félagsmiðstöðinni Hellirinn kl.17:15 á föstudeginum 20.febrúar. Áætlað er að vera komin tilbaka í félagsmiðstöðina um kl.00:45. Stoppað verður við Landsvegamót kl.17:30 fyrir þá sem búa á því svæði. Allir starfsmenn og forstöðumaður mun að sjálfsögðu fylgja með á dansleikinn.

 

Söngkeppnin er síðan haldin í Laugardalshöllinni á laugardeginum 21.febrúar frá kl.13:00 - 16:00. Þar munu 30 flottustu atriði landsins líta dagsins ljós og Kristrún og Júlíus eru þar á meðal. Keppnin verður send beint út á Rás 2.


 


Þeir unglingar sem hafa greitt inn á dansleikinn á föstudeginum geta einnig nýtt sér aðgöngumiðan á söngkeppnina. Félagsmiðstöðin mun ekki hafa skipulagða rútuferð á söngkeppnina. Foreldrar og aðstandendur geta keypt miða á söngkeppnina í anddyri Laugardalshallarinnar.

 

MJÖG MIKILVÆGT er að allir sem hafa skráð sig á dansleikinn eiga að greiða fyrir miða og rútu í síðasta lagi í opnunartíma félagsmiðstöðvarinnar  fimmtudaginn12.febrúar til Evu Ýr starfsmanns félagsmiðstöðvarinnar. Miðinn og rútan eru kr 3000.-

 

Hvet alla foreldra og aðstandendur að skoða heimasíðu félagsmiðstöðvarinnar Hellirinn sem er: www.hellirinn.bloggar.is en þar eru einnig upplýsingar um símanúmer og nöfn starfsmanna.

 

Með kveðju frá starfsfólki og forstöðumanni Hellirsins

Greiđsla fyrir Samfés.!

02. febrúar 2009 klukkan 18:15

 

 

Greiðsla fyrir samfés!!
 
Síðasti séns til þess að borga fyrir Samfés er fimmtudaginn 12.febrúar.
Munið að verðið er 3000 kr. 
Inni í því er innifalinn miðinn sem gildir bæði á ballið og söngvakeppnina og rútan einnig.
En rútan fer bara á ballið og til baka aftur.
Þeir sem fara á keppnina þurfa að redda sér gistingu og fari sjálfir. En foreldrar verða að hafa samband við einhvern af starfsmönnum.
 
Alls ekki gleyma að borga annars komist þið ekki með.
 
Engar undantekningar.
 
Og við viljum fá ykkur öll með :)  
 
Starfsfólk Hellisins.

Myndir af Tvennunni

29. janúar 2009 klukkan 17:16

Erum búin að setja inn fullt af myndum af tvennunni, endilega kíkja :D

Samfés

15. janúar 2009 klukkan 16:51
 

Kæru Foreldrar og forráðamenn J

 

Við hjá Hellinum ætlum að hafa fund miðvikudaginn 21.01 kl 20.00 til að tala um Samfés sem verður helgina 20.02 - 21.02. Það hefur verið ákveðið af forstöðumanni að vera bara annan daginn. Við starfsmenn   Gabriella og Eva og krakkarnir eru ekki sátt við það.  Við erum tilbúnar að fara með krökkunum á föstudeginum 20.02 og gista með þeim í gistihúsi sem heitir Domus og er við Hverfisgötu 45 í Reykjavík, við fengum gistingun á 2000 kr og svo þurfum við að fá rútu einnig og það er kannski 2000 á mann þannig að þetta er svona í heildina um 4000 þús til 5000 á mann rúta og gisting.  Svo er það matur,en við mælum með að taka nesti ef af þessu verður. Síðan kemur einnig kosnaður vegna ball og keppninnar, nánari upplýsingar verða klár fyrir fundinn.

 

Vonumst til að sjá sem flesta foreldra eða forráðamenn

Kv Forstöðumaður og starfsmenn

Opnar aftur :)

12. janúar 2009 klukkan 19:29
Jæja nú erum við komin aftur :D alveg eins opunartímar og síðast.
Latið nú sjá ykkur hress og kát!:)

kv. Gabriella og EvaTongue out

Vímuefnalausir Jólatónleikar 11.desember

04. desember 2008 klukkan 17:06
Núna er aðeins vika í það að þessir glæsilegu tónleikar verða haldnir (: 

Vímuefnalausir jólatónleikar
Íþróttahúsinu á Hellu

11.desember kl.19:30 - 22:00





Félagsmiðstöðin Hellirinn í Rangárþingi ytra bjóða öllum félagsmiðstöðvum á Suðurlandi FRÍTT á jólatónleikana.
Á Móti Sól ásamt hljómsveitum úr Rangárvallasýslu koma fram.

Tilkynna þarf þátttöku í gegnum félagsmiðstöðvarnar á hverjum stað.
Miðað er við 8. - 10.bekk Grunnskóla.






Diskó-Date !! 8.-10.bekkur

17. nóvember 2008 klukkan 20:11
jæja þá er komið að Diskó-Date,,

Við erum búinn að búa til miða fyrir strákana sem verða að koma með miðann og stelpun!!

Fimmtudags Video :) 4. - 7.bekkur

17. nóvember 2008 klukkan 16:24

Fimmtudags Video :)
Kl. 16:00 - 18:00.
4.-7.bekkur.
 

 Fimmtudaginn 20.Nóvember ætlum við að vera saman hérna í Hellinum og horfa saman á DVD. Endilega komið með ávexti og safa með ykkur , ekkert nammi.
Mánudaginn 17.nóv ákveðum við saman hvaða mynd það verður sem horft verður á. 

Allir að koma með góða skapið og hafa gaman 

 Gabriella , eva & Erla

Diskó-Date !! 8.-10.bekkur

17. nóvember 2008 klukkan 16:02
 

Diskó - Date

Fimmtudaginn 20.nov
Kl. 19.30 - 22.00
8.-10.BEKKUR

VERÐUR HALDIÐ SMÁ DISKÓTEK

Núna er komin tími á það að strákarnir skelli sér á hnéð og bjóði stelpunum með sér á Diskó - Date. Og strákar ENGAN skræfuskap! ;) just make it happen.

Það verður DISKÓÞEMA á þessu svaka kvöldi. Reynum að mæta með góða skapið og skemmta okkur vel saman. J 

Hvetjum alla til þess mæta í Diskófötunum , miklu meiri stemmari í því gææææs !

Gabriella , Eva & Erla.

Logo-keppnin

10. nóvember 2008 klukkan 19:51
Sigurvegari Logo-keppninnar er hann Aron Freyr Sigurðsson í 5.bekk.
Hérna fyrir neðan er myndi af þessu flotta Logoi.

Vel heppnuđ Samsuđ ferđ :)

10. nóvember 2008 klukkan 18:28

Jæja þá er Samsuð búið :)

Við viljum þakka öllum krökkunum fyrir helgina það mjög gaman að vera með ykkur. Við erum mjög stolt af ykkur.
Hérna ætlum við aðeins að segja frá ferðinni.

Föstudagur : Við komum í Sandvíkurskóla um 19:00 og komum okkur fyrir í stórum sal. Svo töluðum við aðeins saman áður enn haldið var af stað í Iðu á Samsuðs-ballið. Ballið hófst um um 20:00 og léku þar Dj. Guru & Dj. Heiðar Austmann fyrir Dansi. Krakkarnir skemmtu sér konunglega og allir dönsuðu eins á brjálæðingar. Ballið stóð í 2 og hálfan tíma og eftir það fórum við með krakkana aftur í salinn þar sem við sváfum. Eftir spjall og söngstund í boði Evu og Erlu höfðu krakkarnir svoldið kósý og svo skelltum við okkur bara í háttinn.

   
Laugardagur : Við vöknuðum klukkan 08:00 og fórum í morgun mat klukkan 08:30 í Vallaskóla. Svo fóru krakkarnir og fundu sig til fyir Smiðjurnar sem þar voru í boði. Allir krakkarnir nema 7 völdu Simpsonsmiðjuna , en hinir fóru í leiklistarsmiðjur en færri komust að en vildu í hana. Eva og Erla fóru með krakkana í Simpsonsmiðjuna en Gabriella fór með krakkana í leiklistarsmiðjuna og skemmti sér alveg konunglega þar með krakkana trúið okkur , hún kom út grátin af hlátri til baka :) þetta var víst rosa stuð en allir stóðu sig vel á báðum stöðum. Þessar smiðjur stóðu til 11:30. Eftir það fengu krakkarnir klukkutíma í frítíma og fengu að fara í sjoppuna. Klukkan 12:30 voru krakkarnir allir komnir til okkar og fórum við öll saman í hádeigismat. Þar fengum við dýrindis kjúlla. Eftir það komum við öll saman aftur út í sal og fengu krakkarnir aðeins að slaka á og voru sumir í heimsókn hjá örðum Félgasmiðstöðvum og aðrir í heimsókn hjá okkur. Þetta var svona bara chill tími hjá okkur til 14:30 þá komu allir til okkar aftur í salinn og fóru að finna sig til fyrir söngvakeppnina sem hófst klukkan 15:00. Þetta var frábær keppni og mjög mörg góð atriði og alveg ótrúlegt hvað þessi ungu og frábæru börn hafa góðar raddir. Töframaðurinn Skari skrípó var kynnir Samsuðs-söngvakeppnarinnar og kom hann alltaf með voða skemmtileg töfrabrögð á milli atriða og leyfði meira að segja sumum krökkunum að hjálpa sér aðeins. Við vorum með hana Kristrúnu og Júlíus fyrir okkar hönd og stóðu þau sig sko með glæsibrag. Þau voru með lagið I don't know how to love him og spilaði Júlíus undir á gítar hjá henni Kristrúnu. Við lenntum í 3.sæti sem er alveg FRÁBÆRT og það þýðir að við keppum á Samfés. Við erum öll rosalega stolt af hennar frammistöðu og af þeim tveim. Eftir keppnina hófst matur klukkan 18:00 og svo eftir það fórum við í svaka Sundlaugarpartý , Eva fór með krakkana ofaní og var þetta alveg til 21:00. Ekki má gleyma því að Gabriella skemmti sér einnig mjög vel þar , þar sem hún toppaði daginn með því að henda sér í laugina í öllum fötunum og þarf var sko hleygið saman ekkert djók neitt. Eftir það fórum við út í Zelzíus og þar var SVAKA diskótek þar sem dj. Eva & Erla léku fyrir dansi. Þar var sko brjálað stuð. Þessu diskóteki lauk klukkan 23:00. Þá fórum við bara aftur út í sal og Gabriella reddaði okkur voða góðri mynd og snakki, þar kúrðum við öll saman og höfðum alveg voða kósý. Svo bara fórum við að sofa og vöknuðum hress og kát að sunnudagsmorgni , hjálpuðumst að við það að taka til þar sem allir voru svakalega hjálpsamir og skelltum okkur svo heim eftir góða helgi :)



Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt krakkar að vera með ykkur !
We are so proude of you píps Laughing

Gabriella , Eva & Erla.

Kristrún

07. nóvember 2008 klukkan 00:52
Kristrún frá Laugalandi vann Söngvakeppnina í Hellinum sem haldin var 30.okt síðasliðin ÓSKUM VIÐ HENNI TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐWink hér er linkur á youtube.com sem hægt er að sjá upptöku af vinningslaginu hjá Kristrúnu 

nýja bloggiđ

06. nóvember 2008 klukkan 21:46
Jæja núna er kominn heimasíða fyrir Hellirinn þannig að það geta allir skoða og séð hvað er að gerast hjá okkur...
við erum að fara 7nóv á Selfoss á svo kallað samsuð það er góð þátttaka hjá okkur eða um 50 krakkar sem skráður sig við setjum hér að neðan hvað er æskilegt að hafa með sér 

 

MUNA AD HAFA MED SÉR !! 

Dýnu.

Svefnpoka.

Tannbursta & Tannkrem.

Sundföt & Handklæði.

Málningardót.

Ilmavatn & rakspíra.

Gel eða wax.

Fínni föt.

Náttföt.

Föt til skiptana.

Góða skapið J

OG HREINAR NÆRBUXUR!!:)
Gabriella , Eva & Erla.

vonum að mamma pabbi og allir verði dugleg að skrifa eitthvað hjá okkur ef það vantar
kv Gabirlla og Eva Ýr

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

hvađ vantar í Hellinn