Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Hellirinn

Diskó-Date !! 8.-10.bekkur

17. nóvember 2008 klukkan 20:11
jæja þá er komið að Diskó-Date,,

Við erum búinn að búa til miða fyrir strákana sem verða að koma með miðann og stelpun!!

Fimmtudags Video :) 4. - 7.bekkur

17. nóvember 2008 klukkan 16:24

Fimmtudags Video :)
Kl. 16:00 - 18:00.
4.-7.bekkur.
 

 Fimmtudaginn 20.Nóvember ætlum við að vera saman hérna í Hellinum og horfa saman á DVD. Endilega komið með ávexti og safa með ykkur , ekkert nammi.
Mánudaginn 17.nóv ákveðum við saman hvaða mynd það verður sem horft verður á. 

Allir að koma með góða skapið og hafa gaman 

 Gabriella , eva & Erla

Diskó-Date !! 8.-10.bekkur

17. nóvember 2008 klukkan 16:02
 

Diskó - Date

Fimmtudaginn 20.nov
Kl. 19.30 - 22.00
8.-10.BEKKUR

VERÐUR HALDIÐ SMÁ DISKÓTEK

Núna er komin tími á það að strákarnir skelli sér á hnéð og bjóði stelpunum með sér á Diskó - Date. Og strákar ENGAN skræfuskap! ;) just make it happen.

Það verður DISKÓÞEMA á þessu svaka kvöldi. Reynum að mæta með góða skapið og skemmta okkur vel saman. J 

Hvetjum alla til þess mæta í Diskófötunum , miklu meiri stemmari í því gææææs !

Gabriella , Eva & Erla.

Logo-keppnin

10. nóvember 2008 klukkan 19:51
Sigurvegari Logo-keppninnar er hann Aron Freyr Sigurðsson í 5.bekk.
Hérna fyrir neðan er myndi af þessu flotta Logoi.

Vel heppnuð Samsuð ferð :)

10. nóvember 2008 klukkan 18:28

Jæja þá er Samsuð búið :)

Við viljum þakka öllum krökkunum fyrir helgina það mjög gaman að vera með ykkur. Við erum mjög stolt af ykkur.
Hérna ætlum við aðeins að segja frá ferðinni.

Föstudagur : Við komum í Sandvíkurskóla um 19:00 og komum okkur fyrir í stórum sal. Svo töluðum við aðeins saman áður enn haldið var af stað í Iðu á Samsuðs-ballið. Ballið hófst um um 20:00 og léku þar Dj. Guru & Dj. Heiðar Austmann fyrir Dansi. Krakkarnir skemmtu sér konunglega og allir dönsuðu eins á brjálæðingar. Ballið stóð í 2 og hálfan tíma og eftir það fórum við með krakkana aftur í salinn þar sem við sváfum. Eftir spjall og söngstund í boði Evu og Erlu höfðu krakkarnir svoldið kósý og svo skelltum við okkur bara í háttinn.

   
Laugardagur : Við vöknuðum klukkan 08:00 og fórum í morgun mat klukkan 08:30 í Vallaskóla. Svo fóru krakkarnir og fundu sig til fyir Smiðjurnar sem þar voru í boði. Allir krakkarnir nema 7 völdu Simpsonsmiðjuna , en hinir fóru í leiklistarsmiðjur en færri komust að en vildu í hana. Eva og Erla fóru með krakkana í Simpsonsmiðjuna en Gabriella fór með krakkana í leiklistarsmiðjuna og skemmti sér alveg konunglega þar með krakkana trúið okkur , hún kom út grátin af hlátri til baka :) þetta var víst rosa stuð en allir stóðu sig vel á báðum stöðum. Þessar smiðjur stóðu til 11:30. Eftir það fengu krakkarnir klukkutíma í frítíma og fengu að fara í sjoppuna. Klukkan 12:30 voru krakkarnir allir komnir til okkar og fórum við öll saman í hádeigismat. Þar fengum við dýrindis kjúlla. Eftir það komum við öll saman aftur út í sal og fengu krakkarnir aðeins að slaka á og voru sumir í heimsókn hjá örðum Félgasmiðstöðvum og aðrir í heimsókn hjá okkur. Þetta var svona bara chill tími hjá okkur til 14:30 þá komu allir til okkar aftur í salinn og fóru að finna sig til fyrir söngvakeppnina sem hófst klukkan 15:00. Þetta var frábær keppni og mjög mörg góð atriði og alveg ótrúlegt hvað þessi ungu og frábæru börn hafa góðar raddir. Töframaðurinn Skari skrípó var kynnir Samsuðs-söngvakeppnarinnar og kom hann alltaf með voða skemmtileg töfrabrögð á milli atriða og leyfði meira að segja sumum krökkunum að hjálpa sér aðeins. Við vorum með hana Kristrúnu og Júlíus fyrir okkar hönd og stóðu þau sig sko með glæsibrag. Þau voru með lagið I don't know how to love him og spilaði Júlíus undir á gítar hjá henni Kristrúnu. Við lenntum í 3.sæti sem er alveg FRÁBÆRT og það þýðir að við keppum á Samfés. Við erum öll rosalega stolt af hennar frammistöðu og af þeim tveim. Eftir keppnina hófst matur klukkan 18:00 og svo eftir það fórum við í svaka Sundlaugarpartý , Eva fór með krakkana ofaní og var þetta alveg til 21:00. Ekki má gleyma því að Gabriella skemmti sér einnig mjög vel þar , þar sem hún toppaði daginn með því að henda sér í laugina í öllum fötunum og þarf var sko hleygið saman ekkert djók neitt. Eftir það fórum við út í Zelzíus og þar var SVAKA diskótek þar sem dj. Eva & Erla léku fyrir dansi. Þar var sko brjálað stuð. Þessu diskóteki lauk klukkan 23:00. Þá fórum við bara aftur út í sal og Gabriella reddaði okkur voða góðri mynd og snakki, þar kúrðum við öll saman og höfðum alveg voða kósý. Svo bara fórum við að sofa og vöknuðum hress og kát að sunnudagsmorgni , hjálpuðumst að við það að taka til þar sem allir voru svakalega hjálpsamir og skelltum okkur svo heim eftir góða helgi :)



Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt krakkar að vera með ykkur !
We are so proude of you píps Laughing

Gabriella , Eva & Erla.

Kristrún

07. nóvember 2008 klukkan 00:52
Kristrún frá Laugalandi vann Söngvakeppnina í Hellinum sem haldin var 30.okt síðasliðin ÓSKUM VIÐ HENNI TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐWink hér er linkur á youtube.com sem hægt er að sjá upptöku af vinningslaginu hjá Kristrúnu 

nýja bloggið

06. nóvember 2008 klukkan 21:46
Jæja núna er kominn heimasíða fyrir Hellirinn þannig að það geta allir skoða og séð hvað er að gerast hjá okkur...
við erum að fara 7nóv á Selfoss á svo kallað samsuð það er góð þátttaka hjá okkur eða um 50 krakkar sem skráður sig við setjum hér að neðan hvað er æskilegt að hafa með sér 

 

MUNA AD HAFA MED SÉR !! 

Dýnu.

Svefnpoka.

Tannbursta & Tannkrem.

Sundföt & Handklæði.

Málningardót.

Ilmavatn & rakspíra.

Gel eða wax.

Fínni föt.

Náttföt.

Föt til skiptana.

Góða skapið J

OG HREINAR NÆRBUXUR!!:)
Gabriella , Eva & Erla.

vonum að mamma pabbi og allir verði dugleg að skrifa eitthvað hjá okkur ef það vantar
kv Gabirlla og Eva Ýr

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

hvað vantar í Hellinn