Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Hellirinn

Pool-mótið heppnaðist vel ;)

19. febrúar 2009 klukkan 16:31

Jæja á fimmtudaginn var vorum við með Billjard mót hérna í Hellinum fyrir 5.-7.bekk og heppnaðist það mjög vel , því miður komust ekki allir skráðir keppendur vegna veikinda en náðum við samt að halda keppnina.
Það var spenningur og mikið keppnisskap í krökkunum ;)
Sætaröðin var þessi:


                                         1.Sæti - Jakob Þór Jónsson.
                                       2.Sæti - Unnsteinn Óskarsson.
                                       3.Sæti - Hafrún Hlín Sigfúsdóttir.




                             



Þetta var rosalega skemmtileg keppni ;)  
11 keppendur tóku þátt og hér er mynd af hinum hópnum.


  
                        
             

Myndarlegur hópur sem við eigum hérna ;) 

 Krakkar það eru komnar myndir inn af þessu móti endilega skoðið það ;P

- starfsmenn Hellisins.
Eva Ýr , Erla Sóldís & Kristinn Ingi.



                                                        

Samfés 20. - 21. febrúar 2009

05. febrúar 2009 klukkan 16:38

 

Samféshátíð 2009




 Samfés


Laugardalshöll 20 og 21.febrúar

 

Særsti viðburður félagsmiðstöðva á Íslandi er hin svokallaða Samféshátíð, sem samanstendur af dansleik og söngkeppni. Félagsmiðstöðin okkar Hellirinn, er náttúrulega þátttakandi á þesssari hátíð.  Einnig eigum við keppandur í söngkeppninni sem fram fer á laugardeginum 21.febrúar, en það eru þau Kristrún Steingrímsdóttir sem syngur og Júlíus Margrétarson sem spilar undir á gítar.


 


Hátt í 70 unglingar á aldrinum 14 - 16 ára munu fara á hátíðina frá félagsmiðstöðinni Hellirnum. Á föstudagskvöldið er Samfésdansleikur í Laugardalshöll þar sem m.a. Páll Óskar og Ingó og Veðurguðirnir munu spila. Ballið er frá kl.19:00 - 23:00. Félagsmiðstöðin mun bjóða upp á rútuferð gegn mjög vægu gjaldi á dansleikinn. Allir sem ætla á dansleikinn verða að fara með rútunni. Samfés setur það sem skilyrði að einn starfsmaður sé með á hverja 15 unglinga sem mæta á dansleikinn.

 

Rútan mun fara frá félagsmiðstöðinni Hellirinn kl.17:15 á föstudeginum 20.febrúar. Áætlað er að vera komin tilbaka í félagsmiðstöðina um kl.00:45. Stoppað verður við Landsvegamót kl.17:30 fyrir þá sem búa á því svæði. Allir starfsmenn og forstöðumaður mun að sjálfsögðu fylgja með á dansleikinn.

 

Söngkeppnin er síðan haldin í Laugardalshöllinni á laugardeginum 21.febrúar frá kl.13:00 - 16:00. Þar munu 30 flottustu atriði landsins líta dagsins ljós og Kristrún og Júlíus eru þar á meðal. Keppnin verður send beint út á Rás 2.


 


Þeir unglingar sem hafa greitt inn á dansleikinn á föstudeginum geta einnig nýtt sér aðgöngumiðan á söngkeppnina. Félagsmiðstöðin mun ekki hafa skipulagða rútuferð á söngkeppnina. Foreldrar og aðstandendur geta keypt miða á söngkeppnina í anddyri Laugardalshallarinnar.

 

MJÖG MIKILVÆGT er að allir sem hafa skráð sig á dansleikinn eiga að greiða fyrir miða og rútu í síðasta lagi í opnunartíma félagsmiðstöðvarinnar  fimmtudaginn12.febrúar til Evu Ýr starfsmanns félagsmiðstöðvarinnar. Miðinn og rútan eru kr 3000.-

 

Hvet alla foreldra og aðstandendur að skoða heimasíðu félagsmiðstöðvarinnar Hellirinn sem er: www.hellirinn.bloggar.is en þar eru einnig upplýsingar um símanúmer og nöfn starfsmanna.

 

Með kveðju frá starfsfólki og forstöðumanni Hellirsins

Greiðsla fyrir Samfés.!

02. febrúar 2009 klukkan 18:15

 

 

Greiðsla fyrir samfés!!
 
Síðasti séns til þess að borga fyrir Samfés er fimmtudaginn 12.febrúar.
Munið að verðið er 3000 kr. 
Inni í því er innifalinn miðinn sem gildir bæði á ballið og söngvakeppnina og rútan einnig.
En rútan fer bara á ballið og til baka aftur.
Þeir sem fara á keppnina þurfa að redda sér gistingu og fari sjálfir. En foreldrar verða að hafa samband við einhvern af starfsmönnum.
 
Alls ekki gleyma að borga annars komist þið ekki með.
 
Engar undantekningar.
 
Og við viljum fá ykkur öll með :)  
 
Starfsfólk Hellisins.

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

hvað vantar í Hellinn