Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Hellirinn

Góu Páskabingó :)

30. mars 2009 klukkan 15:31
 

Góu Páskabingó Tongue out



Jæja nú er alveg að koma að því , þann 6.apríl næstkomandi verður Góu Páskabingó hérna í Félagsmiðstöðinni Hellirnum. Þetta verður bara á venjulegum opnunnar tíma semsagt klukkan 16:00 - 18:00 fyrir 4.-6.bekk og frá 19:30 fyrir 7.- 10.bekk. Ath. 7.bekkur má ekki koma á bæði , hann mætir um kvöldið með 8. , 9. og 10.bekk.
Spjaldið mun kosta 200 kr og eru HÁMARK 2 spjöld á mann. Við verðum öll saman hérna , Eva , Erla & Kristinn Ingi.

Alveg glæsilegir vinningar í boði.Laughing

 

 Styrktaraðilar eru:

                               GÓA.

                               Samverk Hellu.

                               Þykkvabæjar.

                               Árhús Hellu.

                               Klippistofan Hellu.

 

Þið megið koma með drykki og svona á bingóið , en munið! 

RUSL Í RUSL Wink

 

Byrjum ekki seinna en 16:15 (yngri) & 19:45 (eldri)

 

Hlökkum til að sjá ykkur Laughing

 

Starfsmenn Hellisins

Kristinn Ingi , Eva Ýr & Erla Sóldís.

Seinni hluti af "TVENNAN" verður 20.maí :)

25. mars 2009 klukkan 16:17

                                                               "Tvennan"
    Laughing 20.maí 2009 kl. 20:00 - 00:00 í Hellubíó
Laughing


Sæl verið þið öll :)

Núna er komið að því!! Seinni hluti af "Tvennan" verður haldinn þann 20.maí næst komandi. Ákveðið hefur verið að hafa þessa tónleika í Hellubíó , loksins fer maður að fara þangað aftur :)
Þetta eru semsagt seinni tónleikarnir af styrknum okkar og ætlum við að hafa þetta flott og mjög gaman.
Þetta eru tónleikar sem haldnir eru fyrir 8.-10.bekk. Við erum búin að óska eftir að hver félagsmiðstöð komi með eitt söngatriði svona til þess að skapa stemmninguna ;p
Aðal hljómsveitin hefur ekki ennþá verið ákveðin en kemur það allt í ljós hver það verður.

Þannig krakkar frá Hellirnum bjóðið ykkur fram og verið í sambandi við okkur með söngatriði á tónleikunum !!

Eins og síðast verðum við svo heppin að hafa flugbjörgunarsveitina Flubbó í gæslu hjá okkur , það er svo gaman :) allir svo hressir þaðan!
Við erum semsagt búin að bjóða félagsmiðstöðum frá Árborg , Ölfusi , Hveragerði , Þorlákshöfn , Kirkjubæjarklaustri , Vík í Mýrdal og Hvolsvelli. Við erum sko handviss um að það verði gott veður og vonumst því til að sjá alla.!
Lítil sjoppa verður hugsanlega á staðnum. 

                Okkur hlakkar til að sjá alla og hafa gaman saman Wink

           



           

          

                                                                                                                          


                                                             Starfsmenn HellirsinsTongue out
                                                    Eva Ýr, Erla Sóldís & Kristinn Ingi

Andlitsförðun

23. mars 2009 klukkan 21:04
 

Andlitsförðun !!

 Núna erum við að spá í að fara að leika okkur aðeins. Þetta er fyrir ykkur krakkana í 4.-6.bekk. Við ætlum að sjá hversu mikinn áhuga þið hafið á því. Þetta má vera allskonar.

 

Stríðsmáling

Prinsessumáling

Fiðrildamáling

Förðun

& eins og þið viljið bara.

 

 

Okkur langar að taka myndir og svona af ykkur , gera þær kanski svoldið flottar.
Talið við okkur endilega ef þið hafið áhuga á þessu krakkar :)

 

 

Starfsmenn Hellisins.

Eva Ýr, Erla Sóldís & Kristinn Ingi

Laugardagsopnun 7.mars

09. mars 2009 klukkan 21:30
Laugardaginn 7.mars var opið hús fyrir nemendur í 1.-3. bekk og foreldra þeirra. Ýmis afþreying var í boði t.d. billiard, playstation, litablöð, píla, perlur, fótboltaspil og svo var tónlistarherbergið opið fyrir þá sem vildu sýna snilli sína, sem var mjög vinsælt :) Einnig voru kaffi og kökur á boðstólnum sem runnu ljúflega niður í mannskapinn.

Dagurinn heppnaðist mjög vel í alla staði og var frábært að fá krakkana í heimsókn til að gefa þeim og foreldrunum smá sýnishorn af því sem er í boði hér í hellinum. Vonumst við til að fá enn fleiri gesti þegar við opnum næst, sem verður vonandi í maí en það verður nánar auglýst síðar.

Hér eru nokkrar myndir af krökkunum en fleiri má sjá á myndasíðunni hér til hliðar.















Starfsfólk Hellisins :)

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

hvað vantar í Hellinn