Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Hellirinn

Reglur / agabrot Áfengi
Hellirinn er félagsmiðstöð fyrir unglinga það sem öll notkun áfengis er bönnuð. Ef upp kemst um slíka neyslu, hvort sem sá hinn sami neytir þess inni í félagsmiðstöðinni eða utan hennar og kemur svo inn, verður haft samband við foreldra og þeir beðnir um að sækja viðkomandi. Slíkt tilkynnist einnig til félagsþjónustu. Jafnframt verður lagt hald á áfengi ef slíkt finnst og geta foreldrar sótt það í félagsmiðstöðina. Um áfengisneyslu nemenda skal tilkynnt til nemendaverndarráðs.

Tóbak
Öll neysla tóbaks er óheimil, hvort sem er inni í félagsmiðstöðinni/skólanum eða á skólalóð. Lagt verður hald á allt tóbak sem finnst við leit á unglingi eða ef slíkt liggur á glámbekk. Foreldrar/forráðanenn geta sótt það tóbak sem lagt hefur verið hald á ef svo ber undir.

Vimuefni
Öll neysla vímuefna er bönnuð, hvort sem um er að ræða neyslu utan,-eða innan húss. Ef ólögleg vímuefni finnast verður haft samband við fíkniefnalögreglu og málinu jafnframt vísað til félagsmálayfirvalda.

Umgengni
Farið er fram á að umgengni um húsnæði félagsmiðstöðvarinnar/skólans og tækjabúnað í húsnæðinu sé til fyrirmyndar. Skemmdarverk á búnaði, húsgögnum eða öðrum eigum félagsmiðstöðvarinnar/skólans skal bætt af viðkomandi.

Ráp Ef unglingur er kominn inn í félagsmiðstöðina eftir kl. 20:00 getur hann/hún ekki farið út og komið svo aftur inn. Er þetta gert til að koma í veg fyrir reykingar á skólalóð, neyslu áfengis eða ólöglegra fíkniefna.

Þjófnaður Ef þjófnaður á sér stað, skal það tilkynnt til forstöðumanns sem tekur ákvörðun um hvort vísa skuli málinu áfram til lögreglunnar. Jafnframt skal tilkynna til skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra er þjófnaður á sér stað.

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

hvað vantar í Hellinn