Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Hellirinn

 

Félagsmiðstöðin Hellirinn Rángárþingi ytra

Meginmarkmið

Í félagsmiðstöðinni Hellirinn á starfið að skipta máli fyrir einstaklinginn og samfélagið í kringum hann. Reynt er  að hafa úrval afþreyinga, uppákoma og viðburða með það að markmiði að auka vellíðan og ánægju, efla þroska og  auka víðsýni.   Starfsmenn gera sér grein fyrir því að þetta er frítími unglinganna og okkar starf felst í því að auka úrval afþreyingar og hafa afdrep fyrir þau þegar þeim hentar.

Þær leiðir sem farnar eru til að ná settum markmiðum:

Virkja unglingana í starfi.

Kenna þeim að virða reglur og virða starfsemina og umhverfi hennar.

Gefið þeim kost á að hafa áhrif á starfsemina og verkefnaval hennar.

Til þess að auka vellíðan og ánægju.. þarf unglingurinn að:

VITA : Að hver og einn á að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.

Finna fyrir : Hvatningu  á jákvæðan hátt af félögunum og starfsmönnum.

Að læra að taka tillit til annara og þarfa þeirra. Hver og einn er sérstakur á sinn hátt.

Við þroskandi tómstundir fær einstaklingurinn að:

Fást við fjölbreytt og skemmtileg viðfangsefni.

Læra að einstaklingar eru misjafnir og við tökum vel á móti öllum.

Vinna á jafnréttis og lýðræðisgrundvelli.

Eyða frítíma sínum í umhverfi sem er aðlaðandi og vingjarnlegt. 

Dagskrá Félagsmiðstöðvarinnar er unnin af starfsmönnum en dagskipulag ákveðinna viðburða er ákveðið  í samráði við forstöðumann. 
Starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar aðstoðar við val á afþreyingu. Þess vegna er mikilvægt að það búi yfir þeirri reynslu sem þarf til að veita unglingunum ráðgöf og athygli eftir umfangi verkefnanna.

Framtíðarsýn:

Að ná sem bestum árangri í uppbyggingu  félagsstarfs unglinga í sveitarfélaginu bæði hvað varðar að skapa frumkvöðla og leiðtoga, efla einstaklinginn í einstaklings og hópaverkefnum. Örva krakkana til ákvörðunartöku og ábyrgðar á eigin gerðum. Með aukinni áherslu á þessa  þætti verða til sterkari einstaklingar sem munu geta haft áhrif innan sveitar sem utan.

 

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

hvað vantar í Hellinn